top of page

Nefndir SHÍ

Fastanefndir Stúdentaráðs Háskóla Íslands eru níu talsins, en þær eru Alþjóðanefnd, Félags- og menningarnefnd, Fjármála- og atvinnulífsnefnd, Fjölskyldunefnd, Jafnréttisnefnd, Kennslumálanefnd, Lagabreytinganefnd, Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd og Umhverfis- og samgöngunefnd.

Röskva á tvö sæti í hverri fastanefnd Stúdentaráðs, fyrir utan Nýsköpunar-og frumkvöðlanefnd (eitt sæti). Röskva hefur einnig forsæti í 6 nefndum miðað við niðurstöður kosninga til Stúdentaráðs 2022.

Röskvuliðar í nefndum SHÍ árið 2022-2023 eru eftirfarandi:

ALÞJÓÐANEFND SHÍ:

Alþjóðanefnd Stúdentaráðs sér um hagsmuni erlendra stúdenta við HÍ og mál íslenskra stúdenta erlendis. Alþjóðafulltrúi SHÍ er forseti nefndarinnar. 
Röskvuliðar í alþjóðanefnd:

Katrín Le Roux Viðarsdóttir
Sigrún Hrönn Möller Bolladóttir

FÉLAGSLÍFS- OG MENNINGARNEFND SHÍ:

Nefndin sér um skipulagningu og framkvæmd helstu félagsviðburða sem Stúdentaráð stendur fyrir. T.d. Októberfest og Fyndnasta háskólanemann. 
Röskvuliðar í félagslífs- og menningarnefnd:

Guðríður Elísa Pétursdóttir(FORSETI)
Ármann Leifsson

FJÁRMÁLA- OG ATVINNULÍFSNEFND SHÍ:

Nefndin tekur til meðferðar ýmis fjárhagsleg hagsmunamál stúdenta, t.d. lánasjóðsmál og atvinnumál. Nefndin vinnur einnig náið að málefnum er varða tengingu við atvinnulífið, t.d. Atvinnudaga í samstarfi við Náms- og starfsráðgjöf. 
Röskvuliðar í fjármála- og atvinnulífsnefnd:

Embla Rún Halldórsdóttir
Ýr Aimée Gautadóttir Presburg

FJÖLSKYLDUNEFND SHÍ:

Nefndin fer með hagsmunamál stúdenta sem eru foreldrar og vinnur að bættu umhverfi fyrir fjölskyldufólk innan skólans. 
Röskvuliðar í fjölskyldunefnd:

Fanney Anna Ómarsdóttir

Linda Rún Jónsdóttir
Mikael Berg Steingrímsson

JAFNRÉTTISNEFND SHÍ:

Nefndin sér um að standa vörð um jafnrétti stúdenta vivð háskólann. Forseti nefndarinnar á sæti í jafnréttisnefnd Háskóla Íslands.. 
Röskvuliðar í jafnréttisnefnd:

Jón Ingvi Ingimundarson (FORSETI)
Ólöf Soffía Eðvarðsdóttir

KENNSLUMÁLANEFND SHÍ:

Nefndin tekur til meðferðar framkvæmd Kennslumálaþings SHÍ í samstarfi við kennslumálanefnd HÍ, gæðanefnd HÍ og Kennslumiðstöð HÍ ásamt því að kynna nám og kennslu við skólann. Forseti nefndarinnar á sæti í kennslunefnd Háskóla Íslands. 
Röskvuliðar í kennslumálanefnd:

Rakel Anna Boulter (FORSETI
Dagmar Ólafsdóttir
Dagný Þóra Óskarsdóttir
Diljá Ingólfsdóttir
Ísak Kárason

LAGABREYTINGANEFND SHÍ:

Nefndin hefur það hlutverk að endurskoða lög Stúdentaráðs og Stúdentasjóðs og leggja fram tillögur til breytinga á þeim, ef þörf þykir. Nefndin skal líta til þess að lögin séu skýr, aðgengileg, samræmd og tryggi skilvirkni í störfum Stúdentaráðs. 
Röskvuliðar í lagabreytinganefnd:

Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir (FORSETI)
Rannveig Klara Guðmundsdóttir

NÝSKÖPUNAR- OG FRUMKVÖÐLANEFND SHÍ:

Nefndin hefur það hlutverk að efla nýsköpunar- og frumkvöðlastarf meðal nemenda Háskóla Íslands. Nefndin vinnur náið með Icelandic Startups og kemur verkefnum þeirra á framfæri meðal háskólanema. Nefndin hefur m.a. tekið að sér verkefni innan Gulleggsins og Student Talks. 
Röskvuliðar í nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd:

Telma Rut Bjargardóttir (FORSETI)

UMHVERFIS- OG SAMGÖNGUNEFND SHÍ:

Nefndin tekur til meðferðar mál er tengjast umhverfis- og sjálfbærnismálum sem og samgöngumálum stúdenta. Forseti nefndarinnar situr í umhverfis- og sjálfbærninefnd Háskóla Íslands. 
Röskvuliðar í umhverfis- og samgöngunefnd:

Dagmar Óladóttir (FORSETI)
Maggi Snorrason
Elísabet Unnur Gísladóttir
Sindri Freyr Ásgeirsson

bottom of page