top of page

Jafnrétti – Róttækni – Heiðarleiki

Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, er stúdentahreyfing sem var stofnuð árið 1988. Grundvallarstefna Röskvu hefur alla tíð verið jafnrétti allra til náms, en kjörorð hreyfingarinnar eru jafnrétti, róttækni og heiðarleiki. Með þau gildi að leiðarljósi eru helstu baráttumál hreyfingarinnar umhverfis- og samgöngumál, hinseginmál, kynjajafnrétti, húsnæðismál, lánasjóðsmál og geðheilbrigðismál. Röskva leggur einnig áherslu á að hagsmunabaráttan takmarkist ekki við háskólann og lætur sig því varða hin ýmsu samfélagsmál er tengjast hagsmunum stúdenta.

P1010895.JPG

Kynntu þér frambjóðendur og málefnaflokka Röskvu 2026!

IMG_3156.HEIC

Háskólaráð

Oddviti - Lilja Hrönn Önnu Hrannarsdóttir - Lögfræði

2. sæti - Hjalti Dagur Hjaltason - Læknisfræði

3. sæti - María Björk Stefánsdóttir - Efnaverkfræði

4. sæti - Magnús Hallson - Lífefna- og sameindalíffræði​​

Kynna mér frambjóðendur!

IMG_3156.HEIC

Háskólaráð

Oddviti - Lilja Hrönn Önnu Hrannarsdóttir - Lögfræði

2. sæti - Hjalti Dagur Hjaltason - Læknisfræði

3. sæti - María Björk Stefánsdóttir - Efnaverkfræði

4. sæti - Magnús Hallson - Lífefna- og sameindalíffræði​​

IMG_3169.HEIC

Félagsvísindasvið

Oddviti - Vignir Berg Pálsson - Stjórnmálafræði

2. sæti - Gabríel Leó Ívarsson - Viðskiptafræði

3. sæti - Sif Káradóttir - Lögfræði

4. sæti - Íris Embla Stefánsdóttir - Félagsráðgjöf

5. sæti - Auður Halla Rögnvaldsdóttir - Stjórnmálafræði

Hugvísindasvið

Oddviti - Ari Hallgrímsson - Sagnfræði

2. sæti - Ásthildur Óskarsdóttir - Almenn bókmenntafræði

3. sæti - Moses Osabutey - Íslenska sem annað mál

Menntavísindasvið

Oddviti - María Fönn Frostadóttir - Grunnskólakennsla

2. sæti - Ívar Máni Hrannarsson - Tómstunda- og félagsmálafræði

3. sæti - Aníta Ósk Arnardóttir - Þroskaþjálfafræði

Heilbrigðisvísindasvið

Oddviti - Valtýr Ferrel - Læknisfræði

2. sæti - Vera Mist Magnúsdóttir - Sálfræði

3. sæti - Dagbjört Lára Bjarkadóttir - Hjúkrunarfræði

Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Oddviti - Lárus Logi Elentínusson - Umhverfis- og byggingarverkfræði

2. sæti - Valdís Katla Sölvadóttir - Líffræði

3. sæti - Kristján Nói Kristjánsson - Hugbúnaðarverkfræði

Legðu okkur lið!

Skrá mig í Röskvu!​​

Stefnumál Röskvu

Jafnrétti - Róttækni - Heiðarleiki

Jafnrétti

Rauði þráðurinn í starfi Röskvu er að tryggja jafnrétti allra til náms, óháð aðstæðum og félagslegri stöðu. Röskva vinnur markvisst að því að tryggja jöfn tækifæri til náms og hefur verið öflug rödd í baráttunni gegn hvers kyns misrétti sem stúdentar líða. Röskva hefur verið áberandi afl innan háskólans, ekki síst í geðheilbrigðismálum, kennslumálum og aðgengismálum. Um þessar mundir einblínir Röskva á fjárhagsöryggi stúdenta, samgöngur og húsnæðismál.

Hvað höfum við gert á árinu?

Röskva hefur ekki staðið auðum höndum á þessu starfsári og settum við fram um það bil helming allra tillaga í stúdentaráði. Hér eru dæmi um þau mál sem við höfum barist fyrir.

Barnaaðstaða innan háskólans

Háskólanemar með börn eru stór hluti stúdenta á Íslandi, en samkvæmt EUROSTUDENT 8 skýrslunni eru 37% háskólanema hér á landi foreldrar, sem er jafnframt hæsta hlutfall í Evrópu. Til að bæta aðstöðu þeirra höfum við í Röskvu lagt fram tillögu um barnaaðstöðu, svokölluð hreiður, á háskólasvæðinu. Þar geta foreldrar sinnt brjóstagjöfum, bleyjuskiptum og notið leiksvæða með börnum sínum. Uppsetning hreiðra er mikilvægt skref í átt að fjölskylduvænna háskólaumhverfi og stuðlar að öryggi og vellíðan foreldra í námi.

bottom of page