Frambjóðendur á Heilbrigðisvísindasviði
Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands fara fram 26. mars
Aðalfulltrúar

Oddviti - 1. sæti
Valtýr Ferrel
Læknisfræði
Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir á þínu sviði?
Á heilbrigðisvísindasviði vil ég leggja áherslu á að kynna stúdentahreyfinguna okkar betur þar sem ég vil virkja fleiri á sviðinu. Því athugasemdir og kvartanir varðandi líf og nám stúdenta þurfa geta skilað sér eitthvert, það verður að vera eitthvað skýrt ferli til þess að fá fram alvöru bætingu.

2. sæti
Vera Mist Magnúsdóttir
Sálfræði
Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir á þínu sviði?
Ég er sálfræðinemi og býð mig fram fyrir Röskvu vegna þess að mig langar að vinna að jafnrétti allra til náms og auknu jafnræði meðal deilda. Ég legg áherslu á að tryggja endurtektarpróf fyrir alla nemendur og bæta aðgengi að námi, meðal annars með auknum upptökum á fyrirlestrum.
.jpg)
3. sæti
Dagbjört Lára Bjarkadóttir
Hjúkrunarfræði
Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir á þínu sviði?
Ég er 24 ára og er á þriðja ári í hjúkrunarfræði. Ég hef setið í námsnefnd innan hjúkrunarfræðinnar þar sem ég hef fengið dýrmæta innsýn í málefni nemenda. Ég vil vinna að því að bæta námsumhverfi, efla samskipti milli stúdenta og stjórnenda og tryggja að sjónarmið stúdenta fái vægi í ákvarðanatöku.
Varafulltrúar

4. sæti
Urður Matthíasdóttir
Læknisfræði

5. sæti
Oliwia Björk Guzewicz
Lyfjafræði

6. sæti
Eva Harðardóttir
Sálfræði
