top of page

Frambjóðendur til Háskólaráðs

Kosningar til Háskólaráðs Háskóla Íslands fara fram 26. mars

 Aðalfulltrúar 

Oddviti - 1. sæti

DSC03304.jpg

Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir

Lögfræði

Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir?

Ég er 25 ára meistaranemi í lögfræði og byrjaði í Röskvu haustið 2019. Sat í Stúdentaráði 2022-2023 og var þá oddviti Röskvu. Ég brenn fyrir sterkum opinberum háskóla sem er fjármagnaður af stjórnvöldum, ekki úr vösum stúdenta.

2. sæti

DSC03483.jpg

Hjalti Dagur Hjaltason

Læknisfræði

Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir?

Undanfarin fimm ár hef ég setið í stjórn Félags læknanema og síðastliðið ár sem forseti stjórnar. Sú reynsla hefur meðal annars kennt mér að hagsmunabarátta stúdenta þurfi ávallt að eiga sér sterka rödd. Ég vil beita mér fyrir bættri aðstöðu nemenda, áframhaldandi þróun og fjármögnun HERMÍS og aukinni áherslu á geðheilbrigði stúdenta.

 Varafulltrúar 

3. sæti

DSC03496.jpg

María Björk Stefánsdóttir

Efnaverkfræði

Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir?

Ég sit í Stúdentaráði fyrir VoN og er oddviti Röskvu. Síðastliðið ár hef ég lagt áherslu á gæði náms og betra skipulag innan námsleiða. Ég tel mikilvægt að rödd stúdenta fái raunverulegt vægi í ákvörðunum háskólans og því býð ég mig fram sem varamann í Háskólaráði.

4. sæti

DSC02998 (1).jpg

Magnús Hallsson

Lífefna- og sameindalíffræði

Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir?

Sæl, Magnús heiti ég eða Gnúsi Halls og er á 3.ári í Líf og Sam. Þetta eru 5 kosningarnar mínar og hef verið í allskonar störfum innan Röskvu eins og stjórn, sviðsráði VoN og einnig stúdentaráðsliði. Mín málefni sem ég brenn fyrir hefur alltaf verið aðgengi að námi fyrir öll, bæði aðgengilegar byggingar fyrir hreyfihamlaða og að vanfjármögnun háskólans skerði ekki að námsvali fyrir nemendur.

bottom of page