Frambjóðendur á Verkfræði- og náttúruvísindasviði
Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands fara fram 26. mars
Aðalfulltrúar
.jpg)
Oddviti - 1. sæti
Lárus Logi Elentínusson
Umhverfis- og byggingarverkfræði
Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir á þínu sviði?
Hæ hæ ég heiti Lárus Logi og er 23 ára Keflvíkingur, fæddur í Bandaríkjunum og hef búið í Kanada. Ég lærði smíðar og er nú nemandi við umhverfis- og byggingarverkfræði. Það málefni sem ég brenn fyrir er andleg heilsa fólks, ég trúi að hægt sé að bæta námsuhverfið á ýmsum stöðum til þess að stuðla að vellíðan nemenda.

2. sæti
Valdís Katla Sölvadóttir
Líffræði
Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir á þínu sviði?
Ég er tvítug og er á fyrsta ári í líffræði, er að stefna á sjávarlíffræðina. Ég hef mikinn áhuga á pólitík og reyni alltaf að taka aktívan þátt. Málefnin sem mér finnst vera mikilvæg að tækla eru aðgengi hreyfihamlaða í byggingum VoN þ.á.m. sjálfvirkar hurðar á hlið Öskju.

3. sæti
Kristján Nói Kristjánsson
Hugbúnaðarverkfræði
Hver ertu og hvaða málefni brennuru mest fyrir á þínu sviði?
Kristján Nói heiti ég og er 19 ára nemi í hugbúnaðarverkfræði. Á mínu fyrsta ári í HÍ hef ég tekið eftir mörgu innan skólans sem þarfnast lagfæringar, á borð við hækkandi gjöld, aðgengismál og fleira. Ég hlakka til að leggja mitt af höndum fyrir hagsmunabaráttu í þágu stúdenta.
Varafulltrúar

4. sæti
Hildur Ósk Sævarsdóttir
Efnaverkfræði

5. sæti
Viggó Alexander Ashworth
Vélaverkfræði

6. sæti
Sigrún Ósk Hreiðarsdóttir
Lífefna- og sameindalíffræði
