top of page

Hvað tökum við með okkur?

Menntavísindasvið sameinast loksins Háskóla Íslands landfræðilega og spennandi mál brenna á vörum nemenda við tilkomu sviðsins á Sögu. Við fögnum því að geta verið nær samnemendum okkar og í leiðinni opnað okkar einstaka námssamfélag fyrir fleiri sviðum. Menntavísindasvið er heppið að því leytinu til að kennsluhættir á sviðinu okkar eru framsæknir og oft frábrugðnir öðrum sviðum. Það gefur augaleið að kennslufræði, samskipti og fjölbreyttir kennsluhættir þurfi að vera í forgrunni á sviði þar sem framtíðar kennarar, þroskaþjálfar, íþróttafræðingar og uppeldisfræðingar eru menntaðir.

Á þessum sameiningartímum er ekki hægt að sjá annað en tækifæri bæði fyrir Menntavísindasvið og háskólann í heild sinni. Með vesturför sviðsins getur þekking bæði starfsfólks og nemenda í menntavísindum leitt til frekara samtals milli sviða. Menntavísindasvið státar sig af því að standa framarlega þegar kemur að fjarnámi og nýstárlegum kennsluháttum, t.a.m. vendi- og leiðsagnarnám. Með flutningi sviðsins í Vatnsmýrina græða stúdentar HÍ ekki einungis nýja vini heldur einnig betra aðgengi að menntavísindum. Minni fjarlægð milli sviða skilar sér vonandi í frekara samstarfi og samtali milli kennara sviða. Háskóli Íslands er stútfullur af frábærum kennurum en það virðist sem að lítið samtal sé á milli sviða. Sviðin fimm eru öll í sitthvoru lagi að reyna að finna upp hjólið, augljóslega væri skilvirkara ef kennarar myndu sækjast í þekkingu hvers annars og þá sérstaklega kennslufræðiþekkinguna sem kemur vonandi í haust í bílförmum frá Stakkahlíðinni og yfir á Sögu.

Staðlotur hafa verið mikið milli tanna á fólki á göngum Stakkahlíðarinnar. Þar heyrist hvísl um tilgang þeirra, um tímaeyðsluna og tekjutap fólks sem þarf að taka sér frí til þess að mæta í einn tíma sem hefði getað verið á netinu. Með tilfærslu okkar vonum við að sviðið endurskoði þessar staðlotur, geri þær að einhverju sem er þess virði að stúdentar mæti á staðinn fyrir. Staðlotur eru fullkomið tækifæri fyrir nemendur og kennara til þess að kynnast betur, vinna meira saman og læra eitthvað nýtt. En þær hafa verið illa nýttar af bæði kennurum og nemendum sem í raun líta ekki á þær sem tækifæri heldur sem kvöl.

Með nýrri staðsetningu koma vonandi nýir hugsunarhættir, bæði á sviðinu okkar sem og skólanum í heild. Eitthvað sem við öll græðum á.

16 views0 comments

Recent Posts

See All

Van­nýtt tæki­færi

Háskóli Íslands hefur farið fögrum orðum um áherslur sínar í umhverfis- og loftslagsmálum. Ein af fjórum áherslunum í stefnu skólans til 2026 snýr að „Sjálfbærni og fjölbreytileika.“ Þessu höfum við í

Lán úr ó­láni

Ein helsta forsendan fyrir jöfnu aðgengi allra að námi hefur um langa tíð verið námslánakerfið. Nú er þetta kerfi í basli með að rækja hlutverk sitt og virðist ganga gegn sjálfri hugsjóninni sem stend

Hver sér um okkur á meðan við sjáum um ykkur?

Klukkan er 7:10 á fimmtudagsmorgni. Það er mars, ég er langt komin með verknámið og önnin er alveg að klárast. Það eru bara nokkrar vikur eftir. Vekjaraklukkan hringir og ég þarf að rífa mig á fætur,

bottom of page