top of page

Lán úr ó­láni

Ein helsta forsendan fyrir jöfnu aðgengi allra að námi hefur um langa tíð verið námslánakerfið. Nú er þetta kerfi í basli með að rækja hlutverk sitt og virðist ganga gegn sjálfri hugsjóninni sem stendur því að baki: að tryggja stúdentum fjárhagslega burði til að stunda nám. Samkvæmt könnun SHÍ á fjárhagsstöðu stúdenta sem gerð var í apríl síðastliðnum segja tæplega 65% nemenda að námslánin þeirra dugi ekki til að framfleyta þeim og um 60% myndu hætta í vinnu ef námslán væru hagstæðari. Það er því greinilegt að eitthvað er að, en hvað nákvæmlega er það og hvernig liti betra námslánakerfi út?

Námslánum er úthlutað úr Menntasjóði námsmanna (MSNM). Honum er sett ákveðin sjálfbærniskrafa sem segir einfaldlega að hann verði að standa undir sér – það á ekki að fara meira fé til lánþega en þeir geta greitt til baka. Ein afleiðing sjálfbærniskröfunnar er sú að öll afföll námslána leggjast á aðra námslánataka í formi vaxtahækkana. En ef sjóðurinn er leið ríkisins til að hjálpa borgurum sínum í gegnum háskólanám, hví lendir það á lánþegum að tryggja hag sjóðsins? Ef markmið sjóðsins væri það að vera sem hagstæðastur fyrir ríkið, þá stæði hann sig frábærlega - en eins og áður var getið er það ekki hugsjónin að baki MSNM.

Eins og frægt er þá er veitt 30% niðurfelling á námslánum MSNM ef námi er lokið á tilsettum tíma, en þetta er í mörgum tilfellum óraunhæf krafa. Ýmislegt getur tafið námsframvindu, t.d. persónuleg áföll eða vandkvæðin sem fylgja því að vinna meðfram námi. Námslánakerfið tekur ekki nægilegt tillit til aðstæðna nemenda og við í Röskvu viljum því að það sé sniðið eftir norskri fyrirmynd þar sem niðurfellingar upp á 40% eru veittar í lok hverrar annar. Það myndi veita nemendum nauðsynlegt svigrúm og gefa okkur færi á að ljúka náminu á eigin forsendum.

Nú er sóknarfæri til þess að bæta lagarammann í kringum lánasjóðinn, endurskoðun á lögunum verður ekki gerð aftur í bráð og það er nauðsynlegt að rödd stúdenta setji tóninn í því samtali.

Síðastliðin sjö ár hefur Röskva náð talsverðum árangri, og nú er sérstaklega brýnt að skýr sýn með hagsmuni framtíðarinnar í fyrirrúmi ráði för við endurskoðun laga um Menntasjóðinn. Við í Röskvu ætlum, eins og við höfum ávallt gert, að berjast fyrir réttlátara háskólasamfélagi, þar sem jafnrétti er ekki bara hugsjón, heldur raunveruleiki. Til þess þurfum við þitt umboð, kæri stúdent: kjósum Röskvu á Uglunni þann 20. og 21. mars!

28 views0 comments

Recent Posts

See All

Van­nýtt tæki­færi

Háskóli Íslands hefur farið fögrum orðum um áherslur sínar í umhverfis- og loftslagsmálum. Ein af fjórum áherslunum í stefnu skólans til 2026 snýr að „Sjálfbærni og fjölbreytileika.“ Þessu höfum við í

Hvað tökum við með okkur?

Menntavísindasvið sameinast loksins Háskóla Íslands landfræðilega og spennandi mál brenna á vörum nemenda við tilkomu sviðsins á Sögu. Við fögnum því að geta verið nær samnemendum okkar og í leiðinni

Hver sér um okkur á meðan við sjáum um ykkur?

Klukkan er 7:10 á fimmtudagsmorgni. Það er mars, ég er langt komin með verknámið og önnin er alveg að klárast. Það eru bara nokkrar vikur eftir. Vekjaraklukkan hringir og ég þarf að rífa mig á fætur,

bottom of page