top of page

Van­nýtt tæki­færi

Háskóli Íslands hefur farið fögrum orðum um áherslur sínar í umhverfis- og loftslagsmálum. Ein af fjórum áherslunum í stefnu skólans til 2026 snýr að „Sjálfbærni og fjölbreytileika.“ Þessu höfum við í Röskvu fagnað enda höfum við krafist þess að háskólinn taki þessum málum föstum tökum. Háskólinn getur haft gríðarleg áhrif út á við með sín tengsl við fjölmarga kima samfélagsins og er auk þess ein af fjölmennustu stofnunum landsins. Skólann sækja tæplega fjórtán þúsund stúdentar og þar starfa um tvö þúsund manns. Því er gríðarlega stórt sóknarfæri til að móta háskólaumhverfið þannig að stærri hópur fólks geti nýtt sér vistvænni samgöngumáta.

Í sjálfbærniskýrslu HÍ 2022 er lögð áhersla á mikilvægi þess að sett séu metnaðarfull markmið og tímaáætlun í samgöngumálum sem auðveldar starfsfólki og nemendum að nota vistvæna samgöngumáta og innleiða hvata til að draga úr bílferðum. Þrátt fyrir þessa viðleitni kastaði háskólinn frá sér einstaklega góðu tækifæri til þess að skapa jákvæða hvata fyrir fólk til að nýta sér almenningssamgöngur þegar horfið var frá áformum um U-passa. U-passi að erlendri fyrirmynd er í grunninn ódýrt samgöngukort ætlað stúdentum og veitir aðgang að fjölbreyttum almenningssamgöngum sem og öðrum vistvænum ferðamátum á borð við deilibíla og rafskútur. Ýmsar útfærslur af slíkum pössum bjóðast til að mynda stúdentum víða í Bandaríkjunum, Kanada, Danmörku og Noregi. Röskva hefur lengi barist fyrir því að teknir séu upp slíkir passar hér á landi og fulltrúar Röskvu hafa sótt málið hart á fjölda funda með háskólayfirvöldum, fulltrúum strætó og fleiri hagaðilum. Sigurinn virtist í höfn þegar rektor gaf fulltrúum Röskvu munnlegt loforð í mars í fyrra um að U-passi yrði tekinn upp áður en gjaldtaka hæfist á bílastæðum við skólann. Á háskólaþingi síðastliðinn janúar var útfærsla á U-passanum síðan kynnt, sem fæli í sér aðgang að Strætó fyrir 30.000 krónur á ári. Þrátt fyrir að sú útfærsla gangi ekki nógu langt, hefði hún þó verið skref í rétta átt. Því miður var fallið var frá þeim áformum vegna kostnaðar.

Röskva telur ekki síður mikilvægt að komið sé til móts við þá hópa sem hafa hvorki aðgengi né gagn af þess lags almenningssamgöngum, svo sem fólk með hreyfihömlun og fólk á landsbyggðinni. Réttlát umskipti (e. just transition) þegar kemur að samgöngu- og umhverfismálum skipta höfuðmáli og það er lykilatriði að staðið sé rétt að stórtækum breytingum svo að þær hafi ekki hlutfallslega óhófleg áhrif á ákveðna hópa.

Það að háskólinn hafi ekki fjárhagslega burði til að standa straum af kostnaði við verkefnið er afleiðing sinnuleysis stjórnvalda þegar kemur að fjármögnun skólans. Staðan er þó sú að umferðarþungi í Vatnsmýrinni verður hreinlega of mikill á næstu árum þegar nýr Landspítali verður tekinn í notkun og menntavísindasvið færir starfsemi sína í Vatnsmýrina samhlið frekari uppbyggingu á svæðinu. Ljóst er að ekki er hægt að fresta mótvægisaðgerðum frekar, þar sem umferðarþungi mun bara koma til með að aukast og lausum bílastæðum mun bara halda áfram að fækka.

Röskva mun halda áfram að berjast fyrir bættu aðgengi stúdenta að fjölbreyttum samgöngum til að tryggja aðgengi, og þar með jafnrétti allra til náms.

29 views0 comments

Recent Posts

See All

Hvað tökum við með okkur?

Menntavísindasvið sameinast loksins Háskóla Íslands landfræðilega og spennandi mál brenna á vörum nemenda við tilkomu sviðsins á Sögu. Við fögnum því að geta verið nær samnemendum okkar og í leiðinni

Lán úr ó­láni

Ein helsta forsendan fyrir jöfnu aðgengi allra að námi hefur um langa tíð verið námslánakerfið. Nú er þetta kerfi í basli með að rækja hlutverk sitt og virðist ganga gegn sjálfri hugsjóninni sem stend

Hver sér um okkur á meðan við sjáum um ykkur?

Klukkan er 7:10 á fimmtudagsmorgni. Það er mars, ég er langt komin með verknámið og önnin er alveg að klárast. Það eru bara nokkrar vikur eftir. Vekjaraklukkan hringir og ég þarf að rífa mig á fætur,

bottom of page